Skila framhlið og baki straujuðu en ekki búin að þræða saman.
Þarf ég að koma með vatt?
Já en þú getur líka keypt það í Bóthildi.
Þarf ég að koma með efni í bak?
Já, en það er
hægt að kaupa það í Bóthildi..
Hvað ef efnið er ekki nógu breitt? Þarf ég þá að setja saman efni í bakið?
Nei. Það eru til breið efni í bök, en ef notuð er hefðbundin breidd, er betra að vera búin að setja það saman í hæfilega stærð. Þessa þjónustu er hægt að kaupa í Bóthildi.
Hversu stórt þarf vattið og bakið að vera?
Hvorutveggja þarf að vera ca. 10 sm stærra en framhliðin á hvern kant.
Hvernig mynstur eru til?
Bóthildur hefur yfir 100 mynstur, misjafnlega þétt. Við köllum þau A, B eða C mynstur eftir þéttleika. Einnig er hægt að fá mynstur í miðju á teppi og annað í kanta og alveg sérsniðið að hverju teppi fyrir sig.
Hvað kostar að láta stinga teppið?
Verðið er reiknað eftir stærð, þ.e. fermetrum og ræðst af þéttleika mynsturs og gerð.
Þarf ég að koma með tvinna?
Nei, Bóthildur hefur margar tegundir af tvinna (mikið úrval af tvinna), bæði einlitan og sprengdan.
Hvers konar vatt er til?
Bóthildur selur bómullarvatt í 250 sm breidd frá Hobbs og nýlega bættist vatt frá Legacy við. Einnig dúkavatt í 125 sm breidd og einangrað vatt fyrir pottaleppa í 55 sm breidd.
Opið lengur!
Bóthildur
er til húsa að Ferjubakka 12.
Opnunartími sept-maí:
Mánudagar 15.30 - 18, þriðjudagar 19 - 21 og fimmtudagar 15.30 - 18
Á opnunartíma er hægt að hringja í 5533770.
Ný sending af batikefnum og fleiru.
PUL efni fyrir margnota bleyjur.
Ný
þjónusta hjá Bóthildi
Tekið er við teppum í vattstungu. Mikið úrval
mynstra.
Bóthildur selur sætusnúðana vinsælu á afar góðu verði. Komið og skoðið úrvalið!
Netverslun Bóthildar
Í netversluninni eru til sölu bútasaumsefni og vatt.